Jæja...
Begga er komin af tattústofunni....

Kom vel út, þó ég segi sjálf

Reyndar var þetta soldið vesen

Mér að kenna

Ég var svo stressuð að ég setti deyfiplástur, sem by the way deyfir
ekki sársaukann, og þá var víst erfiðara að tattúvera mig

En þetta kom vel út og ef eikkað verður asnalegt þá fer ég aftur og
laga

Var soldið vont, samt þessi plástur virkaði ekki, gerði samt
erfiðara fyrir...

TAKK ÍRIS FYRIR AÐ VERA HJÁ MÉR ALLAN TÍMANN!!




ÞÚ ERT BESTUST!!!



En annars þá skrapp ég með Möggu yndisfögru Hrútfjörð niður í bæ í
gærkveld

Skoðuðum alla skemmdu bílana eftir skessuna og geysinn

Myndarlegur frakki kom og spurði Möggu hvað hafi gerst, hvort þetta
væri alvöru, og hann trúði því, þangað til að við leiðréttum okkur
haha
Skoðuðum litlu bílana hans Ómars Ragnarssonar, eða ætti ég að segja
match box bílana, þeir voru allavegana alltof litlir fyrir nokkurn
mann að fitta þarna inn

Sáum hann líka keyra niður Laugaveginn í einum af litlu bílunum
sínum
Sáum báðar skessurnar, þær voru reyndar sofandi

En þær eru samt töff
Vorum að labba um bæinn til hálf 12, fórum þá að rúnta til eikkað 1

Vorum dauðþreyttar og hreyttum upp úr okkur mörgum gullkornum
Magga reyndi líka að vera ökuníðingur, gekk ekki vel

Keyrði á kant og fleira
Sáum líka marga sæta stráka

Einn sem var bara sætur þegar hann horfði niður að mati Möggu,
annar sem vara afar sætur að mati beggu, en ekkert spes að mati
möggu

(SEM HEFUR GREINILEGA LÉLEGAN SMEKK Á KARLMÖNNUM

)
Svo voru aðrir sem tóku því miður eftir því þegar ég söng englasöng
þegar poki fauk fallega framhjá bílnum, meðfram götunni

Möggu fannst það fyndið, skil ekki hvað hún hefur á móti FALLEGUM
englasöng !!
Magga var líka voða erfið þegar við stoppuðum á Aktu Taktu, keyrði
svo nálægt lúgunni að greyið afgreiðslugaurinn, sem var með mjög
getnaðarlegan hankka bara svona koma því að

, átti erfitt með að
taka pöntun, svo fór hún enn nær í næstu lúgu og greyið litli
strákurinn sem var nú ekki eldri en 7 ára, reyndi að útskýra að
númer 8 væri BLT samloka :Þ
Magga er spes jáh

En hún er æðibitinn minn!!!

Og hér er ein mynd frá ævintýrum okkar um miðbæinn....

Ég man ekki hvað við skýrðum hann

En það var dúlló
já ég á æðislegar vinkonur! =***
Ég er farin að horfa á drullu lélegt Eurovision og borða æðislegan
mat!

=*
Begga----------------------------out!